Fara í efni
Fréttir

Áhugavert verkefni til sölu

Áhugavert verkefni til sölu

Hús með mikið útsýni í Skorradalnum til sölu

Lýsing:
Húsið er 88 m2 en skráð 82 m2. Gert er ráð fyrir 3 svefnhergjum, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavèl og þurrkara. Eldhús, stofu og borðstofu í alrými.
Húsið er á steyptum sökklum með steyptri botnplötu. Undirstöður undir pall einnig steyptar.
Skilast fullbúið að utan og einangrað og plastað að innan.
Sólpallur allur fullkláraður ca. 150 m2.
Rotþró tengd og vatn og rafmagn komið í hús.
Lóð og göngustígur að húsi grófjöfnuð.
Búið að gera ráð fyrir lögnum að hleðslustöð við bílaplan sem og lagnir fyrir varmaskipti. ( ídráttarrör )

Húsið er klætt að utan með Lunawood arctic silver hitameðhöndluðum viði, ásamt báruáli sem gerir húsið viðhalds lítið að utan. Þakkantur klæddur með álflasningum og tvöfaldur bræðsludúkur er á þaki.
Gluggar eru ál / trè með þreföldu k-gleri og “sunstop “ filmu. Koma frá Byko.

Þarna er allt það leiðinlega búið, jarðvinna, rotþró, rafmagn og vatn tengt. Búið að setja ull og plasta, steypt plata og hægt að byrja að vinna inni setja veggi og gólfefni, flott að nota veturinn í það.

Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta frekar, endilega hafið samband við Árna á Fasteignalandi, arni@fasteignaland.is