Fara í efni
Fréttir

Eskilundur í landi Miðfells

Eskilundur í landi Miðfells

Virkilega hlýlegur lítill sumarbústaður, með geshúsi á frábærum stað stutt frá Þingvallavatni, í landi Miðfells.

Skipulag eignar: Húsið skiptist í anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og gestahús. Verönd sem liggur meðfram húsi.

Lýsing eignar:
Anddyri: opið yfirbyggt anddyri, þar sem hægt er að grilla og sitja og drekka morgunkaffið.
Forstofa: lítil forstofa með flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa: flæða saman í eina heild og er parket á gólfi.
Eldhús: vel skipulagt snyrtilegt eldhús með eldavél, vaski, og uppþvottavél.
Svefnherbergi: með parket á gólfi.
Baðherbergi: með flísum á gólfi, salerni, sturtuklefa og baðinnréttingu.
Gesthús: með parket á gólfi, salerni og vask.

Hluti af innbúi getur fylgt með fyrir utan persónulega muni.

Eignin stendur á gróinni 1600 m² leigulóð. Malarbílastæði fyrir tvær bifreiðar.
Svæðið er lokað með öryggishliði.

Eskilundur 12 er á sumarhúsasvæði í landi Miðfells í Þingvallahreppi, sem heitir Veiðilundur og er á kyrrlátum stað í nálægð við Þingvallavatn. Um það bil klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. 

Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is