Bláskógar 4, í Svarfhólsskógi, í Hvalfjarðarsveit
EF ÞÚ ERT AÐ LEITA AÐ GÓÐRI STAÐSETNINGU OG HÚSI MEÐ HITAVEITU ÞÁ ER ÞETTA EIGNIN.
Lýsing eignar:
Húsið er staðsett í Svarfhólsskógi í Hvalfjarðarsveit.
Lóðin er kjarri vaxin, auk þess hafa eigendur gróðursett mikið af trjám sem mynda gott skjól og skyggja líka á næstu bústaði.
Eignin Bláskógar 4, er skráð samkvæmt HMS 45,1 fm en stærð húsins er 56 fm. ( þar af óskráð 11 fm. stækkun) Auk þess fylgir gestahús 11 fm. Samtals 67 fm.
Nánari lýsing eignar:
Rúmgóð forstofa með fatahengi.
4 svefnherbergi, með svefnherberginu í gesthúsi og í tveim af herbergjunum eru kojur.
Í alrými eru stofa og eldhús.
Baðherbergi, innrétting, sturta.
Spónaparket á gólfum.
Kynt með ofnum, (hitaveita)
Heitur pottur, stýring fyrir heita pottinn var endurnýjuð 2025, og er stýrt með appi, og er hitavír í lögninni, og er niðurfalli einnig stýrt með appinu. Lokið var endurnýjað 2024 og það með pumpum sem auðvelda að opna og loka.
Það eru tvær myndavélar ein í húsinu og ein sem hægt er að fylgjast með vatnskerfinu undir húsinu. Og hægt er að opna og loka fyrir vatn innan frá úr húsinu.
Verönd á 2 vegu og pallar fyrir framan stofu. Veröndin var máluð 2024 og hús og gluggar voru að mestu málað 2025.
Gestahús, 11 fm. parket á gólfi og kynnt.
Megnið af búslóðinni fylgir með í kaupunum, þannig að þarna er bara hægt að byrja að njóta eftir afhendingu.
Sumarhúsasvæðið er aðgangsstýrt með rafmagnshliðum beggja megin (vegur frá Vatnaskógi annarsvegar og frá Svarfhóli hinsvegar)
