Fara í efni
Fréttir

Þessi fegurð er til sölu í Skorradalnum

Þessi fegurð er til sölu í Skorradalnum

Stórglæsilegt vel við haldið sumarhús.

Um er að ræða timburhús sem er byggt í kringum 2000 og hefur ávalt verið vel við haldið.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 2 svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi og gestahús með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi og fatahengi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, snyrtilegri innréttingu, salerni, handklæðaofn og gert ráð fyrir þvottavél.
Svefnherbergin: í aðalhúsinu eru tvö. Parket á gólfi.
Svefnloft: Er rúmt og nýtist vel.
Eldhús og stofa: Renna saman í eina heild og fallegt útsýni er yfir Skorradalsvatn. Eldhúsinnrétting er upprunaleg en lítur vel út. Úr stofu er er hægt að ganga út á stóra timburverönd með rafmagns potti. Gott geymslupláss: er að finna undir veröndinni.
Geymsla: Er við hlið inngangs.

Húsið er kynt með varmadælu, loft í vatn. Sólpallurinn nær allan hringinn í kring um bústaðinn.

Gestahús:
Svefnherbergin: Eru tvö og rúmgóð, með parket á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og upp veggi, virkilega huggulegt með upphengdu salerni, sturtu og snyrtilegri innréttingu.

Húsið hefur ávalt fengið gott viðhald og sjón er söguríkari.

Fallegt sumarhús með miklu útsýni við þessa einstöku náttúruperlu sem Skorradalurinn er. Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu í Borgarnesi.

Pantið einkaskoðun.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is